Fræðsla

Heilabilun

Hjúkrunarheimili

Hjúkrunarheimili

Það getur komið að þeim tímapunkti í lífi fólks að það þurfi meiri aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi. Áður en óskað er eftir dvöl á hjúkrunarheimili þurfa öll önnur úrræði að vera fullreynd.

Eftir að umsókn um færni- og heilsumat er skilað til færni og heilsumatsnefndar er umsóknin tekinn fyrir á fundi nefndarinnar. Færni- og heilsufarsnefnd kallar eftir hjúkrunarbréfi, læknabréfi og félagsráðgjafabréfi áður en umsókn er lögð fyrir fund. Skriflegt svar frá nefnd berst í tölvupósti ef netfang hefur verið skráð á umsókn. Svar berst annars í bréfpósti á heimilisfang aðstandenda sem gefið er upp við útfyllingu umsóknar.

Á hjúkrunarheimilum er veitt sólarhrings hjúkrunarþjónusta. Einnig er boðið upp á læknisþjónustu, sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun. Upplýsingar um starfsemi hjúkrunarheimila veita heimilin sjálf.

Til þess að eiga kost á dvöl á hjúkrunarheimili þarf að sækja um færni- og heilsumat.

Hér eru nánari upplýsingar á island.is

Hvíldarinnlagnir

Flestir einstaklingar á hjúkrunarheimilum búa þar til langframa en einnig er nokkuð um hvíldarinnlagnir. Nokkur hjúkrunarheimili bjóða upp á hvíldarinnlagnir og með þeim er verið að gefa aðstandendum andrými og hvíld og gefa fólki færi á að kynnast dvöl á hjúkrunarheimili. Það getur auðveldað ferlið þegar kemur að því að taka ákvörðun um að sækja um færni- og heilsumat.