Fræðsla

Heilabilun

Eftir greiningu

Eftir greiningu

Besta leiðin til að minnka óvissu og óöryggi aðstandenda, fjölskyldu og vina er að upplýsa um greininguna. Hreinskilni varðandi sjúkdóminn getur auðveldað vinum og fjölskyldu að tengjast og skilja sjúkdóminn.

Það getur reynst sumum sem greinast með heilabilun erfitt að vera háðari sínum nánustu. Hins vegar segja margir aðstandendur að gott sé að fá að veita aðstoð og umönnun. Gott er að ræða opinskátt um þau áhrif sem heilabilunin hefur á fjölskylduna.

Virkni

Félagsleg, líkamleg og vitræn virkni getur hægt á framgangi sjúkdómsins og minnkað einkenni.

Líkamleg virkni getur verið allskonar og mikilvægt að finna líkamlega þjálfun sem hentar og líklegt er að sé stunduð oft. Sjúkdómurinn getur haft áhrif á jafnvægið, svo jafnvægisþjálfun getur verið nytsamleg.

Félagsleg virkni getur verið í margskonar formi og felst fyrst og fremst í að hitta vini, fjölskyldu og aðra sem okkur líður vel í kringum.

Vitræn virkni felst í að þjálfa heilann með einhverjum hætti en dæmi um slíkt er að leysa krossgátur, sudoku, púsla og fleira.

Matur og drykkur

Rannsóknir sýna að það sem er gott fyrir hjartað er líka gott fyrir heilann. Góðar lífsvenjur virðast geta hægt á einkennum hjá þeim sem þegar hafa greinst með heilabilun.

Mælt er með að borða mikið af grænmeti, ávöxtum og berjum, grófum kornvörum og fiski. Mikilvægt er að drekka vökva. Gott er að takmarka hversu mikils er neitt af unnum kjötvörum, rauðu kjöti, salti, sykri og áfengi.

Öryggi

Gott er að yfirfara heimili og umhverfi með öryggi í huga. Skoða þau hjálpartæki sem eru í boði og fara yfir eldvarnir. Tryggja að engar lausar snúrur eða mottur séu til staðar sem hægt er að hrasa um. Sum hjálpartækja krefjast þjálfunar, því getur borgað sig að byrja snemma að nota þau til að venjast notkun þeirra.

Geyma það sem notað er mest á ákveðnum stað: gleraugu, síma, fjarstýringu og svo framvegis. Það veldur fljótt vanlíðan ef sífellt er verið að leita af sömu hlutunum.

Áreiti

Heilabilun getur valdið því að erfiðara verður að vera í kringum mikið áreiti. Gott getur verið að minna aðra á að „nú er þetta of mikið fyrir mig“ ef áreitið er orðið of mikið. Fjölmennar samkomur geta verið erfiðar og flestum líður best í rólegu og notalegu umhverfi.

Akstur

Heilabilun dregur smám saman úr ökufærni. Því er nauðsynlegt að ökufærnin sé metin reglulega. Heilabilun getur valdið erfiðleikum hvað varðar athygli, dómgreind og viðbragðstíma, þetta er nauðsynleg færni í umferðinni. Margar aðstæður koma upp í umferðinni sem geta verið streituvaldandi og krefjandi. Fyrir einstakling með heilabilun getur streita valdið vanhæfni til viðbragða.

Heilabilun er sjúkdómur sem þróast og oft getur verið erfitt fyrir fólk með heilabilun að sjá hvaða breytingar eiga sér stað. Því er mikilvægt að fá aðra til meta ökufærni. Gott er að ræða þetta við lækni og/eða sína nánustu.

Þegar einstaklingur með heilabilun hættir að aka bíl er hægt að sækja um akstursþjónustu hjá sveitarfélögum. Akstursþjónusta er fyrir þá sem ekki geta ekið sjálfir eða notað almenningssamgöngur. Athugið að reglur geta verið mismunandi á milli sveitarfélaga.