Þjónusta

Þjónusta samtka...

Ráðgjafarþjónusta

Ráðgjafarþjónusta

Heilabilunarsjúkdómar hafa djúpstæð áhrif á fjölskyldulífið. Hlutverk breytast og eðli samskipta verður öðruvísi. Fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra þurfa því oft á ráðgjöf, leiðbeiningum og stuðningi að halda.

Hægt er að fá ráðgjöf á staðnum, í fjarviðtali eða í síma og er hún öllum að kostnaðarlausu. Þá skiptir ekki máli hvar í ferlinu einstaklingur eða fjölskylda er stödd þegar pantað er viðtal.

Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi veitir ráðgjöfina og tímabókun er gerð með því að senda tölvupóst á radgjafi@heilahjalp.is eða hringja í síma 520 1082 og skilja eftir skilaboð á símsvara.

Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi

Segir frá ráðgjafarþjónustunni.