Þjónusta

Þjónusta samtka...

Heilakaffi (áður Alzheimerkaffi)

Heilakaffi (áður Alzheimerkaffi)

Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Heilakaffi er tilvalinn vettvangur til að hittast og eiga notalega samverustund.

Hugmyndin er ættuð frá Hollandi en þar fram fer fræðsla, spjall, kaffi, hljóðfæraleikur og gjarnan söngur.

Hvað fer fram?

Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman og eiga góða stund.

Á dagskránni er spjall, fræðsla, kaffi og söngur.

Það þarf ekki að skrá sig, bara mæta!

Landsbyggðin

Heilakaffi eru einnig haldin á landsbyggðinni og er skipulag oft í höndum tengla samtakanna sem eru staðsettir víðs vegar um landið. Tenglar starfa hver í sínu nærumhverfi, á eigin vegum og/eða í samvinnu við samtökin.

Hlutverk tengla er að veita upplýsingar um samtökin og starfsemi þeirra. Miðla þekkingu um helstu heilabilunarsjúkdóma. Veita stuðning og ráðgjöf í sinni heimabyggð. Stuðla að því að opna umræðuna um heilabilun með því að miðla af reynslu sinni og standa fyrir viðburðum á sínu svæði.