Samtökin

Starfsemi

Fríðusjóður

Fríðusjóður

Fríðusjóður er styrktarsjóður í eigu samtakanna sem stofnaður var árið 2026. Stofnfé sjóðsins er fjármunir sem fengust við sölu fasteignar að Austurbrún 31 í Reykjavík. Fasteignin var gjöf til samtakanna frá Pétri Símonarsyni í minningu eiginkonu hans Fríðu Ólafsdóttur sem glímdi við heilabilun.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til verkefna sem stuðla að bættri þjónustu við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og/eða aukinnar þekkingar á heilabilun í samfélaginu.

Umsóknarfrestur fyrir árið 2026 er liðinn. Opnað verður fyrir nýjar umsóknir 2027.

Styrkveitingar fara fram á málþingi í Bæjarbíói í Hafnarfirði 21. september 2026 - sjá hér