Úthlutun úr Fríðusjóði

Úthlutun úr Fríðusjóði

28. september 2026

Á málþingi Heilahjálpar í Bæjarbíói mánudaginn 21. september síðastliðinn fór fram fyrsta úthlutun úr Fríðusjóði.

Fríðusjóður er styrktarsjóður í eigu samtakanna sem stofnaður var árið 2026. Stofnfé sjóðsins er fjármunir sem fengust við sölu fasteignar að Austurbrún 31 í Reykjavík. Fasteignin var gjöf til samtakanna frá Pétri Símonarsyni í minningu eiginkonu hans Fríðu Ólafsdóttur sem glímdi við heilabilun.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til verkefna sem stuðla að bættri þjónustu við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og/eða aukinnar þekkingar á heilabilun í samfélaginu.

Óháð valnefnd valdi þau verkefni sem hlutu styrk. Í nefndinni sátu Margrét Guðnadóttir, Jón Snædal og Vilborg Gunnarsdóttir.

Alls bárust níu umsóknir en fjögur verkefni hlutu styrk:

2.000.000 kr. - Með heilabilun á heilanum - Hlaðvarpsþættir

(Brynhildur Jónsdóttir og Sigþrúður Guðmundsdóttir)

Í hlaðvarpinu verður lögð áhersla á blöndun faglegrar þekkingar og persónulegrar reynslu og verður rætt við fagfólk, aðstandendur og einstaklinga með heilabilun eftir því sem við á. Meðal þess sem rætt verður um eru sérkenni helstu heilabilunarsjúkdóma, hlutverk aðstandenda og áskoranir sem þeir standa frammi fyrir, lífsgæði og helstu áskoranir, forvarnir og þjónusta í boði. Heilahreystihornið verður í hverjum þætti en þar verður farið yfir það sem rannsóknir hafa sýnt fram á að hægt sé að gera til að stuðla að heilahreysti á öllum aldri.

Umsögn valnefndar:

Hlaðvörp eru frábær leið til að koma fræðslu til skila á lifandi og skemmtilegan hátt. Stjórnendur hlaðvarpsins ætla bæði að taka viðtöl við aðstandendur og sérfræðinga sem við teljum mikilvægt. Við hlökkum til að fylgjast með útgáfu þáttanna.

1.750.000 kr. - Á meðan ég get - Heimildamynd

(Halldór Frank Hafsteinsson)

Um myndina segir Halldór: "Myndin er persónuleg saga um pabba minn sem greindist með sjúkdóminn þegar hann var um fimmtugt. Greiningin hafði gríðarleg áhrif á fjölskylduna og var áfallið mikið. Fyrir greiningu höfðum við aldrei heyrt um sjúkdóminn og virðast fæstir hafa heyrt um hann, þrátt fyrir að hann sé ekki svo óalgengur. Fljótlega eftir að pabbi greindist fannst mér það vera skylda mín að nota hæfni mína til að vekja athygli á sjúkdómnum og að fræða fólk um alvarleika hans. Sú hugmynd að gera heimildarmynd kom talsvert snemma og hófst framleiðsla og hugmyndavinna af meiri alvöru á síðasta ári."

Umsögn valnefndar:

Heimildamyndin "Á meðan ég get" er mjög þarft verkefni þar sem almenn þekking á Lewy Body sjúkdómi er ekki mikil á Íslandi. Nálgunin verður persónuleg sem gefur slíkri mynd aukna dýpt. Vonandi mun myndin dreifast sem víðast og jafnvel til annara landa. 

800.000 kr. - Seiglan - göngur. Fegurð fólks og fjarðar - Bók

(Hildur Jónsdóttir)

Verkefnið er sjálfstætt framhald ljósmyndabókarinnar „Seiglan – göngur. Fegurð fjarðar“, sem Hildur gaf Seiglunni og Heilahjálp fyrr á þessu ári. Á meðan fyrri bókin fangaði umhverfið í gönguferðum, mun nýja bókin feta nýjar leiðir og fanga fegurðina í sjálfu fólkinu á göngu um Hafnarfjörð. Með sama listræna hætti og áður vill Hildur sýna þá samveru, hreyfingu og gleði sem myndast þegar við njótum náttúrunnar saman í gönguferðum Seiglunnar um Hafnarfjörð.

Umsögn valnefndar:

Þetta er fallegt verkefni og fagleg nálgun. Hildur hefur sýnt að hún er næm á aðstæður einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Hún hefur frábært ljósmyndaauga.

450.000 kr. - Tónlistarbæklingur

(Magnea Tómasdóttir)

Í bæklingnum verður fjallað um gildi tónlistar, spilunarlista og markvissa tónlistarhlustun í lífi fólks með heilabilunarsjúkdóma. Tónlistarbæklingur mun hvetja fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra til að útbúa persónulega spilunarlista sem nýtast vel í þeim áskorunum sem daglegt líf með heilabilun bíður upp á. Rannsóknir sýna að tónlist hefur mjög jákvæð áhrif á líf fólks með heilabilunarsjúkdóma og er mjög mikilvægt verkfæri í umönnun fólks. Aukin tónlistariðkun og markviss tónlistarhlustun eykur vellíðan, minnkar depurð, bætir svefn o.fl.

Umsögn valnefndar:

Útgáfa bæklings um gildi tónlistar í stuðningi og umönnun vegna heilabilunar er mikilvægt verkefni. Tónlist er mjög hjálplegt verkfæri í daglegu lífi einstaklinga með heilabilun.