Líkamleg þjálfun
Regluleg líkamleg þjálfun er mikilvægur þáttur að heilbrigðum lífsstíl. Hreyfing getur haft margvísleg áhrif á heilsu okkar, bætir andlega líðan og getur aukið félagslega þátttöku. Einnig á hún þátt í að draga úr kvíða, streitu og þunglyndi sem einstaklingar með heilabilun geta því miður upplifað á öllum stigum sjúkdómsins.
Að tileinka sér æfingaáætlun fljótlega eftir greiningu á heilabilun (ef hún hefur ekki verið til staðar fyrir greiningu) og taka hana inn í sinn lífsstíl, eykur líkurnar á að hreyfingin verði áfram hluti af daglegri rútínu þó sjúkdómurinn ágerist. Það skilar sér í betri heilsu og vellíðan.
Stuðningur og hvatning frá fjölskyldu og aðstandendum er afar mikilvæg til að tryggja að æfingaáætlun sé viðhaldið. Einnig eru fleiri þættir sem spila stóran þátt í því að henni sé viðhaldið en þar má nefna:
- Aðgengi að æfingaaðstöðu
- Fagfólk sem aðstoðar við aðlögun á æfingaáætlun
- Fylgd í æfingaaðstöðu þar sem hægt er að fá aðstoð m.a. við að stilla tæki, rifja upp æfingar eða aðlaga þær eftir getu einstaklingsins
- Aðstoð í búningsklefum t.d við að muna hvar fötin eru geymd, hvaða leið er að æfingaaðstöðunni og fleira sem getur vafist fyrir fólki og jafnvel valdið kvíða
Göngu- og styrktarhópar
Gönguhópar - farið er daglega í göngu (á meðan veður og færð leyfir). Göngulengdin ræðst af getu hópsins hverju sinni en margar fallegar gönguleiðir eru í boði í Hafnarfirði og nágrenni.
Styrktar- og jafnvægisæfingar – eru afar mikilvægar til að viðhalda líkamlegum styrkleika, hreyfigetu og til að minnka líkur á byltum. Unnið er markvisst að því að bæta hreyfi- og stöðujafnvægi með fjölbreyttum og skemmtilegum æfingum.
Handaþjálfun – þjálfun fyrir hendur og fingur til að viðhalda styrk, hreyfigetu og fínhreyfingum sem eru okkur mikilvæg til að framkvæma flesta þætti daglegs lífs.
Gym heilsa
Við eigum gott samstarf við Gym heilsu í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði. Fyrirkomulagið hjá okkur hefur verið á þá leið að þjónustuþegar okkar kaupa sér kort með aðgangi í ræktina og í sund í þeim laugum sem Gymheilsa er til staðar. Þjálfari á vegum Gym heilsu útbýr æfingaáætlun fyrir viðkomandi sem er svo endurskoðuð eftir þörfum. Íþróttafræðingur á vegum Seiglunnar fylgir hópnum eftir og leiðbeinir þeim sem þurfa á að halda, ásamt því að aðlaga æfingaáætlunina ef á þarf að halda, s.s að útlit áætlunarinnar sé skýr og einföld, stilla tæki og rifja upp æfingar. Einnig leiðbeinum við með upphitun og teygjur á eftir æfingu.
Yoga nidra
Yoga Nidra er leidd hugleiðsla og djúpslökun þar sem slakað er á öllum vöðvum líkamans. Ávinningurinn af djúpslökun getur verið margþættur og kemur hún jafnvægi á orkuflæði líkamans og hjálpar til við að öðlast meiri hugarró. Yoga nidra er í námskeiðsformi hjá okkur og eru tímarnir 1x í viku í 8 vikur í senn. Guðrún Ólafía sér um námskeiðin og fara þau fram í Kyrrðinni í Seiglunni. Skráning er á námskeiðin
Pútt og borðtennis
Pútt/golf hjá Golfklúbbnum Keili – einu sinni í viku er boðið upp á pútt í Hraunkoti ásamt því að við höfum aðgang að æfingaaðstöðu og getum farið út á völl að spila. Mæting er í Hraunkot þar sem við tökum á móti fólki en þeir sem vilja geta mætt í Seigluna áður og fengið fylgd yfir í Hraunkot.
Borðtennis í Íþróttahúsinu við Strandgötu – einu sinni í viku er boðið upp á borðtennisæfingar í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar höfum við þjálfara sem heldur utan um hópinn og leiðbeinir á æfingatímanum.
Hitameðferð
Hitameðferð, léttar æfingar og slökun - Hitameðferð fyrir hendur og axlir. Heitir bakstrar eða vax á hendur og heitir bakstrar á herðar. Frábær tími til að slaka á, fá kyrrð í hugann og mýkja upp stífa vöðva.
Skráning og upplýsingar
Listinn er ekki tæmandi og fleiri hópar munu bætast við þegar fram líða stundir og þessir hópar mögulega breytast
Ósk um þjónustu og upplýsingar eru í síma 520 1080 og einnig er hægt senda tölvupóst á seiglan@heilahjalp.is