Málþing um hlutverk og stöðu aðstandenda 

Málþing um hlutverk og stöðu aðstandenda 

Málþing um hlutverk og stöðu aðstandenda verður haldið í Bæjarbíói í Hafnarfirði á alþjóðlegum degi Alzheimer mánudaginn 21. september 2026 frá kl. 13:00 til 14:30.

Málþingið er sérstaklega hugsað fyrir aðstandendur en þó eru öll velkomin.

Dagskrá:

13:00 - Málþing hefst. Thelma Jónsdóttir fræðslustjóri Heilahjálpar setur málþingið.

13:10 - Opnunarerindi. Ásta Kristín Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Heilahjálp, flytur erindi um reynslu sína af ráðgjöf við aðstandendur síðustu ár.

13:25 - Pallborðsumræður um hlutverk og stöðu aðstandenda.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir stjórnarmaður Heilahjálpar og formaður blaðamannafélagsins stýrir pallborðsumræðum.

Þátttakendur í pallborði verða: Kolbrún Birna Halldórsdóttir aðstandandi, Margrét Guðnadóttir forstöðumaður miðstöðvar í öldrunarfræðum, Magnús Karl Magnússon stjórnarmaður í Heilahjálp, Viðar Halldórsson félagsfræðingur, Brynhildur Jónsdóttir sálfræðingur og Karl Óttar Einarsson forstjóri Grundarheimilanna.

14:15 - Styrkveitingar. Ragnheiður Ríkharðsdóttir stjórnarformaður Heilahjálpar veitir styrki úr Fríðusjóði.

14:30 - Málþingslok. Thelma Jónsdóttir fræðslustjóri Heilahjálpar slítur málþinginu.

Málþingið verður í beinu streymi á heilahjalp.is og aðgengilegt í upptöku á eftir.

Málþing um hlutverk og stöðu aðstandenda 

21. september 2026

kl 13:00 - 14:30

Bæjarbíó - Hafnarfirði