Heilakaffi í Hæðargarði 31

Heilakaffi í Hæðargarði 31

Alzheimerkaffi heitir núna Heilakaffi í takt við nafnabreytingu samtakanna.

Það er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

Heilakaffi í Hæðargarði 31

5. nóvember 2026

kl 17:00 - 18:30

Hæðargarður 31

108 Reykjavík

DAGSKRÁ

- Þjóðlagasveitin Kólga mætir og spilar nokkur lög. Þar á meðal flytur hún lagið Eitthvert annað sem fjallar um mann sem hvarf inn í þokuna.

- Kaffiveitingar

- Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó.

TILGANGUR

Gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

FYRIR HVERJA

Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Samkoman er tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.

AÐRAR UPPLÝSINGAR

Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta! Kaffigjald er 500 kr. en það eru Sóroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.