Heilakaffi á Höfn

Heilakaffi á Höfn

Alzheimerkaffi heitir núna Heilakaffi í takt við nafnabreytingu samtakanna sem heita núna Heilahjálp - samtök um heilabilun.

DAGSKRÁ
Hulda Laxdal Hauksdóttir greinir frá leiðum sem stuðlað geta að bættri heilaheilsu.
Spaghettíbandið sér um tónlistana.

Kaffiveitingar eru í höndum kvennfélagskvenna Vöku

FYRIR HVERJA
Heilakaffið er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Samkoman er tilvalinn vettvangur til að fræðast, spjalla og gæða sér á veitingum.

Njótum þess að eiga góða stund saman.

AÐRAR UPPLÝSINGAR
Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta.
Kaffigjald er 500 kr.


Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Anna, Arna, Lovísa, Ragnheiður og Þorbjörg, tenglar samtakanna á Höfn í Hornafirði

Heilakaffi á Höfn

30. september 2026

kl 17:00 - 18:30

Ekrusal

Víkurbraut 30