Heilakaffi í Hæðargarði 31

Heilakaffi í Hæðargarði 31

Heilakaffi er notaleg stund ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Tilvalinn vettvangur til að hittast, hlýða á stutt erindi/skemmtun, spjalla og gæða sér á kaffi og góðum veitingum.

Dagskrá

- Rithöfundurinn Jóna Valborg Árnadóttir kemur og segir aðeins frá sjálfri sér og les upp úr nýju bókinni sinni Skúffuskáldið.

- Kaffiveitingar

- Í lokin stjórnar Sveinn Arnar Sæmundsson samsöng og spilar undir á píanó. Að þessu sinni verða jólalögin í forgrunni.

Tilgangur

Tilgangurinn er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, þar sem þeirra þörfum er mætt og opna umræðu um áskoranir fólks með heilabilun.

Aðrar upplýsingar

Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta!

Kaffigjald er 500 kr. en það eru Soroptimistar sem sjá um kaffi og veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Heilakaffi í Hæðargarði 31

3. desember 2026

kl 17:00 - 18:30

Hæðargarður 31

108 Reykjavík