Heilakaffi á Akureyri

Heilakaffi á Akureyri

Alzheimerkaffi heitir núna Heilakaffi í takt við nafnabreytingu samtakanna sem heita núna Heilahjálp - samtök um heilabilun.

DAGSKRÁ
Nánar auglýst þegar nær dregur.

FYRIR HVERJA
Heilakaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Samkoman er tilvalinn vettvangur til að hittast, spjalla og gæða sér á kaffi og veitingum.

Njótum þess að eiga góða stund saman.

HVAR
Kaffið verður núna haldið í Birtu félagsmiðstöð fólksins sem er í Bugðusíðu 1, 603 Akureyri

AÐRAR UPPLÝSINGAR
Engin þörf á að skrá sig - bara að mæta. Kaffigjald er 500 kr.
Nánari upplýsingar í Facebook hóp: Alzheimer Kaffi Akureyri.


Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Björg, Dóra og Hansína María, tenglar samtakanna á Akureyri

Heilakaffi á Akureyri

1. október 2026

kl 17:00 - 18:30

Birta félagsmiðstöð fólksins - Bugðusíðu 1

603 Akureyri