Fræðsla í Vestmannaeyjum

Fræðsla í Vestmannaeyjum

Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið á Suðurlandið þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi í Vestmannaeyjum

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

⏰HVENÆR
Þri. 1. september kl. 18:00

🏠HVAR
Akóges salurinn, Hilmisgötu 15

🗣HVERJIR
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

👥FYRIR HVERJA
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Fræðsla í Vestmannaeyjum

1. september 2026

kl 18:00 - 19:30