Fræðsla í Borgarnesi

Fræðsla í Borgarnesi

Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið í Borgarnes þar sem við höldum opið fræðsluerindi í hátíðarsal Brákarhlíðar.

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

⏰HVENÆR
Fim. 19. nóvember kl. 17:00

🏠HVAR
Hátíðarsalur Brákarhlíðar

🗣HVERJIR
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

👥FYRIR HVERJA
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Fræðsla í Borgarnesi

19. nóvember 2026

kl 17:00 - 18:30