Aðstandendasamvera í Borgarnesi
Aðstandendur fólks með heilabilun eiga það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða hjúkrunarheimili.
Markmið samverunnar er að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annara í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Engin skipulögð dagskrá bara mæta og spjalla. Rödd ykkar skiptir máli.
Sigga Skúla og Birna tenglar Heilahjálpar (áður Alzheimersamtökin) verður á staðnum.
Makar og nánir ættingjar hjartanlega velkomnir
17. september 2026
kl 17:00 - 18:00
Félagsstarf aldraðra - Borgarbraut 65a
