Nýtt nafn samtakanna
Heilahjálp - samtök um heilabilun er nýtt nafn samtakanna.
Hvers vegna nýtt nafn?
Heilabilun er regnhlífarhugtak yfir um 200 sjúkdóma sem valda heilabilun. Um 60% þeirra sem glíma við heilabilun eru greind með Alzheimer en um 40% greinast með heilabilun af öðrum orsökum.
Nafnið Alzheimersamtökin nær því ekki nægilega vel utan um starfsemi félagsins og hefur valdið því að þau sem greinast með heilabilun af öðrum völdum en Alzheimer, hafa ekki leitað til samtakanna.
Nýtt merki (logo)
Nýtt merki samtakanna er unnið á grunni eldra merkis. Merkið vísar í heilahvelin og að breytingar verði á þeim þegar um heilabilun er að ræða.
Nýtt merki er hannað af Salbjörgu Ritu Jónsdóttur.
Á aðalfundi þann 12. maí 2026 var tillaga stjórnar um að breyta nafni samtakanna samþykkt. Stjórn og starfsfólk telja að nýtt nafn lýsi starfsemi samtakanna betur og verði til þess að fleiri leiti til okkar og nýti þá þjónustu sem er í boði.