Tenglar Heilahjálpar komu saman
30. september 2026
Í síðustu viku hittust tenglar Heilahjálpar, sem starfa víðs vegar um landið, til að eiga saman góðan og gagnlegan dag. Fyrst á sameiginlegum fundi en seinna hélt hópurinn á málþing samtakanna í Bæjarbíói.
Á fundinum gafst tækifæri til að deila reynslu, ræða það sem vel hefur gengið og velta fyrir sér hvernig megi þróa og efla tenglastarfið enn frekar.
Deila hugmyndum
Tenglastarfið er fjölbreytt og aðstæður ólíkar eftir sveitarfélögum. Sumir tenglar hafa til dæmis reynslu af því að halda Heilakaffi og aðstandendasamverur en aðrir eru að stíga sín fyrstu skref. Því er mikilvægt að skapa vettvang þar sem tenglar geta lært hver af öðrum, deilt hugmyndum og fengið innblástur frá því sem vel hefur gefist annars staðar.
Opna umræðuna
Rætt var meðal annars um hvernig megi efla bekkjagönguna sem haldin er ár hvert að vori og hvernig hægt sé að vekja enn meiri athygli á heilabilun í heimabyggð. Þá spunnust umræður um leiðir til að opna umræðuna um heilabilun í hverju sveitarfélagi og stuðla að aukinni þjónustu og stuðningi við einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra. Líkt og undanfarin ár var einnig rætt um skort á sérhæfðri dagþjálfun á landsbyggðinni.
Það var samdóma álit fundarmanna að árlegir tenglafundir væru mikilvægur vettvangur til að hittast, miðla reynslu og styrkja tengslin. Jafnframt kom fram áhugi á að hittast oftar og því hefur verið ákveðið að prófa fjarfund í byrjun næsta árs.
Hvar eru tenglar starfandi
Á landsbyggðinni eru starfandi tenglar í 21 sveitarfélagi. Þetta eru: Akranes, Akureyri, Borgarnes, Dalvík, Fjallabyggð, Fjarðabyggð, Hella, Hólmavík, Húsavík, Hvammstangi, Hveragerði, Höfn í Hornafirði, Ísafjörður, Patreksfjörður, Reykjanesbær, Selfoss, Seyðisfjörður, Skagafjörður, Stykkishólmur, Vestmannaeyjar og Vík í Mýrdal.
Viltu gerast tengill samtakanna?
Við viljum gjarnan stækka þennan góða hóp. Bæði fá tengla á fleiri staði víðs vegar um landið en einnig vilja nokkrir tenglar gjarnan fá fleiri í sitt lið. Tenglastarfið er sjálfboðaliðastarf og því sinna bæði aðstandendur og fagfólk en einnig einstaklingar sem láta sig málefnið varða og vilja láta gott af sér leiða. Hægt er að kynna sér starfið betur hér.
Ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn þá endilega hafðu samband í síma 533 1088 eða sendu okkur póst á heilahjalp@heilahjalp.is