Takk fyrir okkur Vík og Vestmannaeyjar
4. september 2026
Við skelltum okkur á Suðurlandið í vikunni. Vorum á Vík á mánudaginn og héldum þar tvö fræðsluerindi, það fyrra fyrir starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Hjallatúni en það síðara var haldið á Hótel Vík í Mýrdal og var öllum opið. Fínasta mæting í heildina og einstaklega góðar umræður við starfsfólk hjúkrunarheimilisins.
Á þriðjudaginn tóku Vestmannaeyjar á móti okkur með glampandi sól og logni. Þar byrjuðum við á að hitta fagfólk á HSU og á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. Þá lá leiðin í Akóges salinn þar sem mætingin var einstaklega góð og mikið um spurningar og spjall eftir erindið. Þá lá líka mikið þakklæti með komu okkar í loftinu, eitthvað sem okkkur þykir ávallt vænt um að upplifa.
Mikilvæg ferðalög
Enn og aftur það er okkur svo mikilvægt og dýrmætt að ferðast svona um landið og hitta fólk, heyra reynslusögur úr daglegu lífi og starfi og kynnast þeim áskorunum og tækifærum sem fólk stendur frammi fyrir.
Þakkir til tengla
Við viljum jafnframt færa tenglum okkar, þeim Helgu Þorbergs á Vík og Þórdísi Gyðu Magnúsdóttur í Vestmannaeyjum innilegar þakkir fyrir aðstoðina. Það var sannarlega gott að koma til ykkar.
Myndband
Við útbjuggum einnig stutt myndband úr ferðina sem má horfa á hér