Takk fyrir okkur Sauðárkrókur og Hvammstangi

Takk fyrir okkur Sauðárkrókur og Hvammstangi

12. október 2026

Við brunuðum í Skagafjörðinn og Húnaþing vestra í síðustu í viku.

Stoppuðum fyrst á Sauðárkróki sem tók á móti okkur með glampandi sól og logni. Þar héldum við tvö fræðsluerindi, það fyrra fyrir starfsfólk í dagdvöl og hjúkrunarheimili en það síðara var haldið í Húsi frítímans og var öllum opið. Mjög góð mæting og fínar umræður.

Úr Skagafirðinum lá leiðin á Hvammstanga. Þar byrjuðum við á að hitta fagfólk á HVE sem starfar á heilsugæslunni og hjúkrunardeild. Seinnipartinn lá leiðin í safnaðarheimilið þar sem mætingin var góð og nokkuð um spurningar og spjall eftir erindið.

Á öllum stöðum lá mikið þakklæti í loftinu með komu okkar, eitthvað sem okkkur þykir ávallt vænt um að upplifa.

Í Húnaþingi má finna þrjá fjólubláa bekki og heimsóttum við tvo þeirra, einn á Hvammstanga og annan á Borðeyri.

Mikilvæg ferðalög

Enn og aftur það er okkur svo mikilvægt og dýrmætt að ferðast svona um landið og hitta fólk, heyra reynslusögur úr daglegu lífi og starfi og kynnast þeim áskorunum og tækifærum sem fólk stendur frammi fyrir.

Þakkir til tengla

Við viljum jafnframt færa tenglum okkar, Stefaníu Sif á Sauðárkróki og Elísabet Eir og Sigurbjörgu á Húnaþingi innilegar þakkir fyrir aðstoðina. Það var sannarlega gott að koma til ykkar.

Myndband

Við útbjuggum einnig stutt myndband úr ferðina sem má horfa á hér