Fréttir

Styttist í Reykjavíkurmaraþon

Styttist í Reykjavíkurmaraþon

5. ágúst 2026

Laugardaginn 22. ágúst fer Reykjavíkurmaraþonið fram og er enn hægt að skrá sig, safna áheitum og styðja við samtökin með því að skrá sig hér. Við hvetjum öll til að setja inn stuttan texta um hvers vegna þú hleypur fyrir samtökin. Slíkar persónulegar sögur hjálpa til við að vekja athygli og auka stuðning við málstaðinn.

Nýr bolur og buff

Þau sem ákveða að hlaupa í nafni samtakanna fá afhentan bol og buff á básnum okkar á Fit&Run í Laugardalshöll þegar hlauparar sækja hlaupagögnin sín. Við verðum þar frá kl. 14.00-20.00 fimmtudaginn 20. ágúst og föstudaginn 21. ágúst.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og takk fyrir stuðninginn 💜

Taktu þátt – jafnvel þótt þú hlaupir ekki

Það eru margar leiðir til að styðja málefnið. Ef þú ætlar ekki að taka þátt í hlaupinu sjálfu getur þú heitið á einn af hlaupurunum okkar. Á hlaupastyrkur.is má finna einstaklinga og hópa sem hlaupa til styrktar Alzheimersamtökunum. Veldu þinn hlaupara og vertu með í að styðja mikilvægt málefni 💜