Söngvinir - syngjum saman

Söngvinir - syngjum saman

25. september 2026

Söngæfingar fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur/vini þeirra.

Fyrir hverja
Söngæfingarnar eru fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur/vini sem njóta þess að syngja með öðrum. Þátttakendur geta komið einir en mælt er með því að koma með vini/fjölskyldumeðlimi til að eiga góða stund saman.

Verkefnið
Hópurinn kemur saman og æfir nokkur vel valin íslensk lög. Farið verður í öll þau atriði sem einkennir góðan hópsöng og séð til þess að hver og einn söngvari fái tækifæri til að blómstra. Á síðustu æfingu og á opinni æfingu bætast fleiri hljóðfæraleikarar í hópinn. Miðvikudaginn 25. nóvember verður opin æfing þar sem þátttakendur geta boðið þeim sem þau vilja til að koma og njóta.

Hvar
Æfingarnar verða í Múlabæ  Síðumúla 32 Reykjavík.

Hvenær  
á þriðjudagskvöldum frá 6. október til 24. nóvember. Opin æfing verður miðvikudaginn 25. nóvember.

Tími
Æfingin er frá 17:00 – 18:30 en húsið opnar kl 16:30 og lokar kl 19:00.

Kostnaður
Skráningargjald er 10.000 á hvern söngvara.

Skráning
annasigga63@simnet.is og magneatomasdottir@gmail.com

Stjórnendur

Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, Anna Sigga Helgadóttir söngkona og Magnea Tómasdóttir söngkona.

 Stjórnendur hafa víðtæka reynslu að vinna með tónlist með alls konar hópum og hafa sérhæft sig að starfa með fólki með heilabilunarsjúkdóma.

Nánari upplýsingar:

Anna Sigga, sími: 861 3843 - annasigga63@simnet.is
Magnea, sími 846 2129 - magneatomasdottir@gmail.com

                                                            

Verkefnið er styrkt af Tónheilsusjóði