Rödd fólks með heilabilun í forgrunni á ráðstefnu Alzheimer Europe
3. nóvember 2026
Í síðustu viku var árleg ráðstefna Alzheimer Europe haldin í Dublin, undir yfirskriftinni „Sláinte: Building momentum in dementia through policy, research and partnership”.
Ráðstefnan var haldin í 36. sinn en hún var sú fjölmennasta frá upphafi, með yfir 1.400 þátttakendum frá 44 löndum.
Samstarf og þekking í þágu fólks með heilabilun
Megináhersla ráðstefnunnar var á mikilvægi samstarfs, stefnumótunar og rannsókna til að bæta líf fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra. Fjallað var meðal annars um forvarnir, greiningu, meðferð, umönnun, stuðning við aðstandendur og mikilvægi þess að skapa samfélag þar sem fólk með heilabilun getur tekið virkan þátt og notið sömu réttinda og aðrir.
Rödd fólks með heilabilun í forgrunni
Mikilvægur þáttur ráðstefnunnar var að tryggja að rödd fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra fengi að heyrast. Einstaklingar deildu reynslu sinni bæði á stóra sviðinu og í fjölmörgum minni málstofum. Það var gegnumgangandi áhersla á að reynsla þeirra og sjónarmið verði að vera órjúfanlegur hluti af stefnumótun, rannsóknum og ákvörðunum um þjónustu.
Íslendingar í vinnuhópum
Eins og undanfarin ár hittust vinnuhópar dagana fyrir ráðstefnuna, annars vegar hópur fólks með heilabilun og hins vegar hópur aðstandenda. Þessir hópar hittast reglulega yfir árið og í þeim eru tveir íslenskir fulltrúar. Það er mikilvægt framlag og dýrmætt tækifæri til að miðla íslenskri reynslu og sjónarmiðum í alþjóðlegu samstarfi.
Samstarf lykillinn að betra samfélagi
Ráðstefnan undirstrikaði mikilvægi þess að vísindalegar framfarir skili sér í betri þjónustu, snemmtækari greiningu og auknum stuðningi við fólk með heilabilun og fjölskyldur þess. Rauði þráðurinn var skýr: með samstarfi, þekkingarmiðlun og virkri þátttöku fólks með eigin reynslu er hægt að skapa samfélag þar sem fólk með heilabilun fær að lifa innihaldsríku lífi, viðhalda sjálfstæði sínu og tilheyra samfélaginu.
Nýr innblástur í áframhaldandi starf
Við komum heim frá Dublin með nýja þekkingu, hugmyndir og innblástur til áframhaldandi starfs. Ráðstefnur sem þessar eru mikilvægar til að efla tengsl og samstarf, læra af reynslu annarra og sækja nýjar hugmyndir sem hægt er að nýta hér á landi.
Myndband
Við útbjuggum stutt myndband um ferðina sem má horfa á hér.