Orðaval skiptir máli

Orðaval skiptir máli

25. nóvember 2026

Við höfum útbúið skjal í tengslum við orðaval og sent til flestra fjölmiðla á landinu. Þar með viljum við leiðbeina þeim varðandi virðingarfulla umfjöllun um fólk með heilabilun.

Við hvetjum fjölmiðla, og í raun allt fólk, sem dæmi til að tala um einstakling með heilabilun og forðast að segja „sá heilabilaði“. Heilabilun skilgreinir nefnilega ekki manneskjuna.

Þá hvetjum við fólk einnig til að forðast að nota orðið „elliglöp“ þar sem heilabilun tengist ekki eingöngu háum aldri.

Hægt er að nálgast skjalið í heild sinni hér að neðan.

Orðaval skiptir máli