Lífsstíll og heilabilun
23. febrúar 2024
Talið er að hægt sé að hafa bein áhrif á um 40% áhættuþátta heilabilunar.
Með því að fylgja almennum ráðleggingum Landlæknis og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um heilbrigði og lífsstíl getum við haft áhrif á stóran hluta þessara áhættuþátta.
Að fylgja ráðleggingum um t.d. svefn, mataræði, hreyfingu, félagsleg tengsl og vitræna örvun getur verið forvörn gegn heilabilun, hægt á framgangi sjúkdómsins og minnkað einkenni.
Hér eru nokkrar einfaldar ráðleggingar:
Svefn
- Reyna að sofa nálægt 8 klst. á sólarhring
- Reyna að hafa reglu á svefninum. Fara að sofa og vakna á svipuðum tíma.
Mataræði
- Neyta fjölbreyttrar fæðu.
- Hugsa meira um að bæta inn í mataræðið næringarríkri fæðu frekar en að útiloka fæðutegundir. Dæmi: neyta meira af grænmeti og ávöxtum.
- Neyta mikið unnina matvæla í takmörkuðu magni.
- Drekka ekki áfengi og neyta ekki tóbaks
Hreyfing
- Öll hreyfing er betri en engin hreyfing.
- Finna hreyfingu sem þú hefur gaman af. Dæmi: Ganga rösklega 20-30 mín á dag.
- Gera styrktaræfingar 2-3x í viku og viðhalda þannig vöðvamassa og beinþéttni.
Félagsleg örvun
- Að tilheyra skiptir máli og gott er að vera í reglulegum félagslegum tengslum við vini, kunningja og fjölskyldu.
Hugræn örvun
- Örva hugann með einhverjum hætti eins og t.d. að spila á spil, leysa krossgátu, spila skák o.s.frv.
Góð ráð varðandi lífsstíl
- Ekki breyta of miklu í einu, horfðu til lengri tíma.
- Byrjaðu á því sem þér finnst auðveldast að breyta.
Byggt á Lancet, FINGER, ráðleggingum Landlæknis og WHO