Lausnamót Heilahjálpar
3. september 2026
Í maí 2026 stóð Heilahjálp fyrir svokölluðu lausnamóti þar sem breiður hópur hagaðila fékk það verkefni að leita lausna við þeim áskorunum sem blasa við í málefnum einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra.
Tilgangur lausnamótsins var að safna saman fjölbreyttum sjónarhornum um helstu áskoranir og lausnir í málefnum einstaklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra, með sérstakri áherslu á greiningu, þjónustu, réttindi og stuðning.
Viðburðurinn var vettvangur öflugrar hugmyndavinnu einstaklinga með heilabilun, aðstandenda, fagfólks í heilbrigðis- og félagsþjónustu, fulltrúa stjórnvalda og sveitarfélaga,lögfræðinga, mannauðsfólks, fulltrúa atvinnulífs og félagasamtaka.
Við val á þátttakendum var horft til þess að ólík sjónarhorn kæmu að vinnu hvers hóps, fólk með beina reynslu af sjúkdómnum, fagfólk sem starfar í kerfinu og fulltrúar þeirra aðila sem bera ábyrgð á þjónustu, stefnumótun og fjármögnun.
Við erum gríðarlega stolt af þessari vinnu og þakklát þeim sem tóku þátt 💜