Er rauður tannbursti málið?

Er rauður tannbursti málið?

19. ágúst 2026

Er rauður tannbursti málið? Þessari spurningu, og mörgum öðrum, svaraði Helga Pétursdóttir tannlæknir í áhugaverðu erindi hjá okkur um munnheilsu og heilabilun.

Helga fjallaði meðal annars um hvernig hægt er að undirbúa og þjálfa það að fá aðstoð við tannhirðu. Hún benti á mikilvægi þess að velja góðan tíma, fara rólega af stað og gefa sér tíma til að venjast aðstoðinni.

Hún hvatti einnig til þess að tannlæknir sé upplýstur um heilabilunargreiningu og að tengiliður sé skráður í sjúkraskrá. Þá fór hún yfir mismunandi tegundir tannbursta og benti á ýmis hjálpartæki sem geta auðveldað tannhirðu.

Við þökkum Helgu kærlega fyrir góðan og fróðlegan fyrirlestur og hvetjum sem flest til að horfa á upptökuna.