Einlægt erindi um missi, sorg og ástina

Einlægt erindi um missi, sorg og ástina

12. nóvember 2026

Í vikunni kom Sigurjón Þórðarson til okkar og hélt fræðsluerindi um missi, mannlega viðkvæmni, húmor, hlýju og það að læra að lifa áfram með sorginni, ekki gegn henni og svo auðvitað um ástina.

Sigurjón sagði frá því hvernig lífið breyttist algjörlega, þegar hann missti Hrafnhildi, eiginkonu sína og lífsförunaut til 39 ára úr krabbameini. Hann talaði um sorgina sem byrjaði löngu áður en hún dó, um tómleikann sem fylgdi missinum og um það hvernig hann reynir að finna fótfestu í nýju lífi sem hann valdi ekki.

Sigurjón deildi því sem hjálpaði honum, bjargráð, sorgarhópurinn, fjölskyldan, vinirnir, jákvæð sálfræði, og litlu augnablikin sem halda minningunni lifandi. Hann talaði um ástina sem er enn til staðar, og hvernig sorgin er í raun bara hlið á ástinni, ef maður þorir að elska þá er gjaldið við missi, sorg.

Við þökkum Sigurjóni innilega fyrir þetta einlæga og fallega erindi.

Upptaka í boði

Þeir sem komust ekki geta horft á upptökuna með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Við biðjumst samt velvirðingar á hljóðbylgjuforminu sem er því miður yfir myndbandinu.

Upptaka