Fyrsta Alzheimerkaffi ársins

Fyrsta Alzheimerkaffi ársins

19. janúar 2024

Víða í Evrópu eru rekin svokölluð Alzheimer Café sem er viðburður þar sem fram fer fræðsla, spjall, kaffi, hljóðfæraleikur og gjarnan söngur. Hugmyndin er ættuð frá Hollandi. Þar í landi eru starfrækt um 200 slík kaffihús. Alzheimerkaffi er ætlað fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra. Alzheimerkaffi er tilvalinn vettvangur til að hittast og eiga notalega samverustund.

Alzheimerkaffi eru haldin víða um land og má nálgast dagskrá hér að neðan.

Fyrsta Alzheimerkaffi ársins á höfuðborgarsvæðinu verður haldið 25. janúar þar sem Birna Stefánsdóttir kemur til okkar og segir aðeins frá sjálfri sér, ljóðabók sinni “Örverpi” og þýðingu þess að hafa hlotið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið að henni.

Sjá alla viðburði