Fræðsla fyrir aðstandendur - aftur húsfyllir
14. október 2026
Enn og aftur var fullt út úr dyrum þegar Brynhildur Jónsdóttur, sálfræðingur, endurtók fyrirlesturinn sinn um aðstandendur og helstu áskoranir á ólíkum stigum í þriðja sinn. Þörfin er greinilega mikil og einhverjir að mæta aftur enda breytast aðstæður. Fyrirlesturinn var tekinn upp og hægt er að nálgast hann hér að neðan.
Mikilvægi sjálfsumhyggju
Brynhildur fór yfir helstu áskoranir aðstandenda frá fyrstu grunsemdum og greiningarferli, í gegnum dagþjálfun og hvíldarinnlagnir, og allt til flutnings á hjúkrunarheimili. Í þessu ferli þurfa fjölskyldur að takast á við margar krefjandi aðstæður og áskoranir. Þá talaði hún einnig um nánd, breytt hlutverk, flóknar tilfinningar sem þarf að vinna úr og mikilvægi þess að aðstandendur hlúi að eigin líðan.
Reynslusögur og lifandi umræður
Brynhildur hefur í starfi sínu með stuðningshópum og í sálfræðiviðtölum öðlast dýrmæta innsýn í reynslu aðstandenda og deildi hún fjölmörgum dæmum úr starfi sínu.
Eftir erindið komu fram nokkrar góðar spurningar úr þéttsetnum salnum, meðal annars um hvað sé hægt að gera þegar einstaklingur neitar að sækja úrræði og þá urðu nokkrar umræður um hvíldarinnlagnir.
Upptaka í boði
Þeir sem komust ekki að þessu sinni geta horft á upptökuna með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Við þökkum Brynhildi innilega fyrir þetta mjög svo þarfa erindi.