Aðstandendur skipta máli
23. september 2026
Á hverju ári fögnum við alþjóðlegum degi Alzheimer, 21. september, með einhvers konar viðburði. Í ár héldum við málþing í Bæjarbíó í Hafnarfirði þar sem yfirskriftin var hlutverk og staða aðstandenda. Þangað mættu um 200 manns og álíka margir fylgdust með í streymi.
Opnunarerindið hélt Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna. Hún fjallaði um stöðu aðstandenda og mikilvægi þess að þeir hlúi að sér.
Pallborðsumræður
Því næst voru pallborðsumræður sem Sigríður Dögg Auðunsdóttir stjórnarmaður Heilahjálpar stýrði. Þátttakendur þar voru: Kolbrún Birna Halldórsdóttir aðstandandi, Margrét Guðnadóttir forstöðumaður miðstöðvar í öldrunarfræðum, Magnús Karl Magnússon stjórnarmaður í Heilahjálp, Viðar Halldórsson félagsfræðingur, Brynhildur Jónsdóttir sálfræðingur og Karl Óttar Einarsson forstjóri Grundarheimilanna.
Að segja frá og leita stuðnings
Í pallborðinu urðu afar góðar og einlægar umræður um ýmislegt sem snýr að lífi eftir greiningu á heilabilun og mikilvægi stuðnings við einstaklinga og aðstandendur.
Þar kom meðal annars fram að það getur skipt miklu máli að segja frá greiningunni, en það þarf þó að gerast þegar einstaklingurinn er tilbúinn og á hans eigin forsendum og hraða. Að segja frá getur aukið sjálfstraust, dregið úr einangrun og skapað stuðningsnet í kringum einstaklinginn og fjölskylduna.
Einnig var rætt um nauðsyn þess að leita sér aðstoðar og stuðnings, meðal annars hjá Heilahjálp. Mörgum hefur reynst vel að mynda tengsl við aðra sem eru í svipaðri stöðu og stofna til jafningjastuðnings. Slík tengsl geta veitt mikilvægan félagslegan stuðning, skilning og tilfinningu fyrir því að standa ekki ein með þær áskoranir sem fylgja heilabilun.
Þá var lögð áhersla á að mæta einstaklingnum á hans eigin forsendum og gefa sér tíma. Nærveran skiptir miklu máli og leiðin eftir greiningu getur verið löng. Þá var rætt um að aðstandendur þurfi ekki síður að hlúa að sjálfum sér. Það er auðvelt að gleyma eigin þörfum þegar allur hugurinn beinist að ástvini sem glímir við heilabilun. Því er mikilvægt að leita stuðnings, gefa sér tíma og muna að eigin líðan skiptir einnig máli.
Upptaka
Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna sem og þeim sem fylgdust með í beinu streymi. Málþingið var tekið upp og hægt er að horfa á það hér